Breiðumýri
225 Álftanes
Sími 550 2340 - Gsm 821 5018
Minnsta letur
Miðstærð leturs
Stærsta letur
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
Atburðadagatal
Ýmsar myndir
Skip Navigation LinksForsíða > Um leikskólann
Prenta

Stefna Holtakots er frjáls leikur, Uppbyggingarstefnan, hreyfing listsköpun og hollt matarræði.

 

Hér í leikskólanum leggjum við áherslu á að börnin fái að njóta sín í hinum sjálfssprottna leik sem er barninu eðlilegur fyrstu æviárin.  Ýmis reynsla barnsins og upplifanir úr daglegu lífi endurspeglast í leiknum og er hann leið barnsins til að skilja raunveruleikann aðeins betur og átta sig á eigin tilfinningum.  Leikurinn felur því í sér gífurlega fjölbreytt nám, þar sem barnið er á eigin forsendum og getur prófað sig áfram og aflað sér reynslu, en er ekki eingöngu matað utanfrá af viðurkenndum staðreyndum. 'i leiknum er einnig passa upp á að listakrókur sé opin alla daga og er listsköpun þá í gangi alla daga fyrir öll börn.

 

Í leikskólanum er líka lögð áhersla á hreyfingu allt skólaárið, þar sem samfélagið okkar breytist hratt, er sífellt mikilvægara að hreyfiþjálfun barna sé sinnt þar sem  þau hafa ríka þörf fyrir að hreyfa sig.

Í gegnum hreyfingu læra börnin að stjórana líkama sínum og hvernig þau geta notað hann.  Ung börn eru mjög móttækileg fyrir því að læra um heilbrigðan líffstíl sem er grunnur að góðu og heilbrigðu líferni seinna á lífsleiðinni.

 

Einnig leggjum við áherslu á hollt matarræði þar  sem börnin fá fjölbreyttan og hollan mat.  Með áherslu á aukna neyslu grænmetis og ávaxta.

 

Við erum að byrja að vinna eftir uppbyggingarstefnunni sem miðar að því að  barninu er opnuð önnur leið / tækifæri til að læra betri samskipti og byggja þannig upp sinn innri styrk.  Þannig að uppbyggingin er byggð á lífsgildum, sem fjalla um það sem við viljum standa fyrir sem persónur.

 

Markmið Holtakots;

 

*að búa börnunum umhverfi sem er skapandi, forvitnilegt og fjölbreytt til náms, gegnum leik og störf sem efla alhliða þroska þeirra.

*að börnin læri að taka tillit til annarra og efli með sér skilning á tilfinningum og þörfum annarra.

*að efla jákvæða sjálfsvitund, sjálfstraust og sjálfsmynd barnanna, svo þau verði sjálfstæðir einstaklingar, sem geta valið og hafnað út frá eigin forsendum.

*að börnin læri að vinna með öðrum og beri virðingu fyrir umhverfinu sínu og öðrum.

*að foreldrar, börn og starfsfólk séu ánægð og líði vel í leikskólanum.

*að gott samstarf, traust og gagnkvæm virðing skapist milli heimilis og skóla.